26júlí
Ég hef ekki bloggað síðan 17-hundruð og súrkál.
ÞAð hefur verið mikið að gera í sumar...í Byrjun Júní voru skólaslit, og um kvöldið var lokaball fyrir 7-10 bekk... þar sem Brynjar már var DJ. Þegar allir voru búnir að dansa og skemmta sér í ca. 3 tíma.. þá var komið að úrslitum kosningar um Nemendafélagið 06/07... Þar vann Elfar Már, Mörtu um stöðuna sem formaður..... Og Þórkatla var meðstjórnandi úr 8 bekk.... Þann 14 júní fór ég frá keflavíkurflugvelli í haglél til Króatíu.... Við flugum yfir Bretlandseyjar, Þýskaland, Frakkland og yfir Alpafjöllin og lentum á Ítalíu í 35 stiga hita...(Alveg eins og að klessa á vegg!!) ÞAðan fórum við með rútu til Króatíu í gegnum Slóveníu. Þar skellti maður sér í sjóinn eftir lélega loftkælda rútu. ÞAð var alllt of heittt þarna úti.. Hver dagur var öðrum betri. Við vorum á ágætu hóteli (Smáhýsum) Fyrstu vikuna.. en seinni vikuna vorum við á þessu fína hóteli:D. ÞAr kynntist ég Króata sem hétu Philip og var hann mjög svekktur þegar Kóatía gerði jafntefli við Ástrala, og komst ekki í 16 liða úrslitin í Þýskalandi. Þann 26.. Fórum við til Feneyja sem er fallegasta bor í heimi að margra mati!! Við fórum inní Markúsar kyrkjuna sem stendur við Markúsartorgið (Per San Marco)Sem er öll úr hvíta gulli og demöntum. Fórum í 60 metra háan turn sem stendur við torgið og sáum yfir alla borgina... Rúsínan í Pylsuendanum var sigling um Grand Canal. fljótið sem rennur í gegnum eyjuna, Þar sem við fórum undir Ríaltó brúna. Við Lögðum svo á stað til Íslands frá Ítalíu tveimur dögum seinna. Í síðustu viku fór ég til Flateyjar á Breiðafirði, gisti þar í eina nótt, Sigldi svo yfir til Brjánsleækjar..og keyrði til Ísafjarðar. AÞr veiddi ég 6 Stórar bleikjur og 3 regnbogasilunga. Vorum á Ísafyrði í 3 daga og keyrðum svo heim í Borgarnes. Á sunnudaginn fór ég í fyrsta skipti í Golf á þessu sumri og ég er ansi hræddur um að ég hafi smitat af golfinu:D. Hef ekkert meira að segja.-Jói Snæ
